

Bókanir og leiguskilmálar
Vinsamlegast lesið í gegnum meðfylgjandi texta um bókanir og leiguskilmála áður en þið fyllið út bókunarbeiðnina.
Greisðlur
Við bókun greiðist 25% innborgun af leiguverði, til staðfestingar. 8 vikum fyrir byrjun á leigu greiðast næstu 25%. Eftirstöðvar 50% greiðast fyrir brottför. Greiðslumáti: Bankayfirfærsla, Evrur, Ferðatékkar, eða Visa /Mastercard.
Afpöntun
Ef bókun er afpöntuð, áskiljum við okkur þann rétt að halda innborgun. Ef mögulegt er að leigja bátinn út munum við endurgreiða innborgunina að frádregnum verðmuni á leigu, ef einhver er og 200 Evrur afpöntunarkostnaði.
Tryggingar
Allar skúturnar eru í fullri ábyrgðar og kasko (hull) tryggingu, en eigin sjálfsábyrgð er 1500 evrur. Inni sjálfsabyrgð felast tjón á skútu, léttbát og utanborðsmòtor.
Áhöfn og persónulegir munir er ekki innifalið í tryggingu bátsins.
Vid mælum eindregið med því að þið hafið ykkar eigin ferða og slysatryggingu.
Tryggingargreiðsla
Trygging fyrir sjálfsábyrgð greiðist á staðnum í formi: Evrur, ferðatékkar eða Visa/Mastercard

