UK FlagIcelandic Flag
image
Gold swish

Gold swish

www.flickr.com

This is a Flickr badge showing photos in a set called Seaways Sailing - Turkey 2006.

Click on the Gallery Link to see more photo's


Seaways News

Aftur yfir Atlantshafið í júní 2011

Antigua - Bermuda - Azores - Gibraltar - Malta - Fethiye

Önundur ásamt áhöfn siglir Íslandssól 45 feta Sun Odyssey skútu Seaways-Sailing's aftur til Tyrklands frá Karabískahafinu.

Enn eru laus pláss frá Gibraltar til Möltu. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í tölvupósti: info@seaways-sailing.com

Ákvörðunarstaður
Koma
Brottför
Antigua 2.maí
Bermuda 9.maí 11.maí/td>
Azores 22.maí 26.maí
Gibraltar 4.júní 7.júní
Malta 14.júní 17.júní
Fethyie 24.júní
 

Posted: 21/04/2011

blue swish


Antigua Sailing Week April 2011

Seaways-Sailing tekur þátt í siglingakeppni í Karabískahafinu á Íslandssól Sun Odyssey´s 45.

"Antigua Sailing Week" er ein af fimm stærstu siglingakeppnum heims og er stærst í Karabískahafinu. Keppnin spannar viku og keppendur eru á heimsmælikvarða.

Nánari upplýsingar á www.sailingweek.com

Posted: 21/04/2011

blue swish


Yfir Atlantshafið í janúar 2011

Fethiye - Malta - Gibraltar - Canary Island - Cape Verde - Barbados

Önundur og áhöfn lögðu af stað í reisu frá Tyrklandi til Karabískahafsins á Íslandssól Sun Odyssey´s 45. Ferðin gekk í alla staði mjög vel

Posted: 20/04/2011

blue swish


7th International Autumn Regatta 2009 - Results

Overall - Division II

Yacht Name
Race I
Race II
Race III
Race IV
Total
Pos.
Sea Wolf 1 3 1 2 7 1
Lady Bubu 3 4 2 1 10 2
Andrea 2 1 4 5 12 3
Sollare 9 2 3 6 20 4
Sam 4 7 6 3 20 5
Islandssol 5 5 7 8 25 6
Gezgin 9 9 5 4 27 7
Mandolin Wind 6 6 8 7 27 8
 

Posted: 30/11/2009

blue swish

Siglinganámskeið í Tyrklandi 10. til 19. október 2009

Námskeið mynd

Næsta námskeið er áformað 10. – 19 oktober

Kostnaður á hvern þátttakanda er ca. 198.500- kr. miðað við að tveir deili káetu. (Kostnaður er með fyrirvara, þar sem verð á flugi getur verið breytilegt). Aukakostnaður fyrir sér káetu er 49.500- kr.. Innifalið er skútan og skipstjóri/kennari. Annar kostnaður skiptist jafnt niður á þátttakendur s.s. kostur, hafnargjöld, olia o.s.frv. Reikna má með u.þ.b. 45-50 tyrkneskum lírum á dag (ca 4300 ISK) fyrir þann þátt.

Námskeið þessi eru tilvalin fyrir þá, sem hafa í huga að leigja eða kaupa skútu og sigla sjálfir. (Cruising) og/eða þá sem vilja öðlast reynslu og þekkingu, sem virkur áhafnarmeðlimur (Competent  Crew)

Námskráin er byggð á kröfum Siglingastofnunar fyrir skemmtibátaskírteini (ICC) og stöðlum Royal Yachting Association fyrir Day Skipper.
Að auki eru ýmis önnur atriði tekin fyrir sem við teljum að séu nauðsynleg, uppbyggjandi og fróðleg fyrir tilvonandi „cruising“ skipstjóra.

Kennslan fer fram um borð í 45 feta Jeanneau Sun Odyssey 45 og búa þátttakendur um borð þann tíma sem námskeiðið tekur. Hámarks fjöldi nemenda eru 5.
Áætlað er að námskeiðið hefjist í heimahöfn Seaways, í Göcek og ljúki í Finike, sem er í námunda við Antalya.

Siglingasvæðið hentar einkar vel til þjálfunar fyrir „cruising“ skipstjóra, þar sem aðstæður eru þannig að nemendur fá þjálfun í að akkera við mismunandi aðstæður og leggja að í mismunandi höfnum. Veðurfar er hagstætt, mjög sjaldan landlegur vegna veðurs, en getur blásið þokkalega um miðjan dag (7-12 m/sek.), frábært til að ná góðum tökum á meðhöndlun seglabúnaðar við mismunandi skilyrði.

Að lokum er svo vert að minnast á að ibúarnir eru einstaklega gestrisnir og hjálpsamir og kunna vel til verka í matreiðslu.

Frábær leið til að sameina áhugamál og skemmtiferð!

Nánari upplýsingar gefur Önundurí síma +354 552 8747 / 891 8747
E-mail onni@seaways-sailing.com

Posted: 27/08/2009 - uppfært 06/09/2009

blue swish

Siglinganámskeið í Tyrklandi 3. og 10. júlí 2009

Næstu námskeið eru áformuð 3. – 10. júlí og 10. – 17. júlí.
Flogið er frá Keflavik beint til Bodrum/Milas 3.og 10. júlí.

Kostnaður á hvern þátttakanda er 700 Evrur (115.500- kr. m.v. gengi 165.00) miðað við að tveir deili káetu. Aukakostnaður fyrir sér káetu er 300 Evrur (49.500- kr.). Innifalið er skútan og skipstjóri/kennari. Annar kostnaður skiptist jafnt niður á þátttakendur s.s. kostur, hafnargjöld, olia o.s.frv. Reikna má með u.þ.b. 45-50 tyrkneskum lírum á dag (ca 4000 ISK) fyrir þann þátt.
Flugsæti KEF - BJV - KEF 74.500- kr. með sköttum.
Samtals 190.000- kr. pr. mann miðað við að tveir deili káetu.
239.500- kr. fyrir sér káetu. 

Námskeið þessi eru sett upp með þá í huga sem ætla sér að leigja eða kaupa skútu og sigla sjálfir. (Cruising).
Námskráin er byggð á kröfum Siglingastofnunar fyrir skemmtibátaskírteini og stöðlum Royal Yachting Association fyrir Day Skipper.
Að auki eru ýmis önnur atriði tekin fyrir sem við teljum að séu nauðsynleg, uppbyggjandi og fróðleg fyrir tilvonandi „cruising“ skipstjóra.

Kennslan fer fram um borð í 45 feta Jeanneau Sun Odyssey 45 og búa þátttakendur um borð þann tíma sem námskeiðið tekur. Hámarks fjöldi nemenda eru 6 í hvoru námskeiði
Áætlað er að fyrra námskeiðið hefjist frá heimahöfn Seaways, Göcek og ljúki í Bodrum. Seinna námskeiðið myndi þá hefjast í Bodrum og enda í Göcek.
Siglingasvæðið er mjög hentugt til þjálfunar fyrir „cruising“ skipstjóra, þar sem aðstæður eru þannig að nemendur fá þjálfun í að akkera við mismunandi aðstæður og leggja að í mismunandi höfnum. Veðurfar er hagstætt, mjög sjaldan landlegur vegna veðurs, en getur blásið þokkalega um miðjan dag (7-12 m/sek.), frábært til að ná góðum tökum á meðhöndlun seglabúnaðar við mismunandi skilyrði.

Að lokum er svo vert að minnast á að ibúarnir eru einstaklega gestrisnir og hjálpsamir og kunna vel til verka í matreiðslu.

Frábær leið til að sameina áhugamál og skemmtiferð!

Nánari upplýsingar gefur Önundurí síma +354 552 8747 / 891 8747
E-mail onni@seaways-sailing.com

Posted: 06/05/2009

blue swish

Siglingaskóli í Tyrklandi í apríl 2009

Íslenska fjölskyldufyrirtækið Seaways ehf., sem rekur seglskútuleigu með aðsetur í Göcek í Suður-Tyrklandi, áformar að halda skútusiglinganámskeið í Tyrklandi dagana. 13.-24.apríl og 23. april – 3. maí 2009. Sams konar námskeið voru haldin á sama tíma í fyrra við góðan orðstír þátttakenda
Námskein eru sett upp til að gefa öllum þeim fjölda „pungaprófskvenna og karla”, sem sótt hafa bókleg námskeið undanfarin misseri, kost á verklegri kennslu og þjálfun. Siglinganámskeiðin eru m.ö.o. verkleg námskeið, ætluð þeim fjölda einstaklinga, sem aflað hafa sér bóklegra skipstjórnarréttinda.

Siglt verður á nýjum 45 feta (13.72m) skútum af gerðinni Jeanneau Sun Odyssey 45.

Lengd námskeiða er 10 dagar. Fjöldi nemenda verður takmarkaður við 3 – 6 í skútu. Fyrra námskeiðið byrjar 13. april og endar 23. april. Það seinna er frá 23. april – 3. maí. Námskeiðið þann 13. hefst í Göceck og lýkur í Fimike í námunda við Antalya. Hið seinna hefst í Finike 23. april og lýkur í Göceck. Farið verður í skemmri siglingar/æfingar á Göcek-flóa, auk lengri ferða og nætursiglinga. Áð verður og akkerum varpað í fallegum víkum og lagt inni í höfnum á svæðinu. Þátttakendur búa um borð meðan á námskeiði stendur.

Á námskeiðunum fá þátttakendur þjálfun í stjórnun seglskipa, sem og annarri vinnu um borð í slíkum skipum. Þetta felur í sér skipstjórn, beitingu skips, seglabúnaðar og vélar við ýmiskonar aðstæður, notkun siglingatækja sem og almenna og góða sjómennsku. Námskeiðum stjórnar einn eigenda Seaways Sailing, Önundur Jóhannsson, flugstjóri.

Þarna gefst einstakt tækifæri til að sigla við frábærar aðstæður. Þarna fer saman fallegt umhverfi, gott veður og sérlega gestrisnir íbúar. Á þessum tíma má búast við hitastigi 20 - 25 yfir daginn og 12 - 17 á nóttuni. Vindur 4-6 vindstig að degi en 0-2 að nóttu.

Flogið frá Keflavík til Antalya í Tyrklandi með Úrval Útsýn Kostnaður fyrir hvern þátttakanda á námskeiðinu er 189,200 krónur ef tveir eru í káetu. Aukalega fyrir sér káetu er 55,100. Innifalið er: skútan, skipstjórinn/kennarinn og flugið til og frá Antalya.

Námsskrá er samkvæmt stöðlum Siglingastofnunar fyrir Skemtibátaskírteini (ICC) og Royal Yachting Association fyrir ICC & Coastal Skipper. Að þessu námskeiði loknu fá þáttakendur réttindi til stjórnunar seglskipa, sé bóklegu prófi lokið.

Nánari upplýsingar gefur Önundurí síma +354 552 8747 / 891 8747
E-mail onni@seaways-sailing.com

Posted: 11/03/2009

blue swish

Siglinganámskeið Seaways í Tyrklandi

Í April 2008 var Seaways með siglinganámskeið í Tyrklandi. Allir sem tóku þátt fóru heim mjög ánægðir, með góða reynslu og kunnáttu í farteskinu.

Næstu námskeið 4. – 13. apríl og 13. – 23. apríl.
Flogið er frá Keflavik beint til Antalya 4. og 13. apríl brottför kl. 13:55, komutími kl. 22:55.
Flug til baka 13. og 23. apríl, brottfö rkl. 23:40 og komið til Keflavikur 14. og 24. apríl kl. 03:10.

Kostnaður á hvern þátttakanda er 765 Evrur (114.750- kr. m.v. gengi 150.00) miðað við tvo í káetu. Aukakostnaður fyrir sér káetu er 380 Evrur (57.000- kr.). Innifalið er skútan og skipstjóri/kennari. Annar kostnaður skiptist jafnt niður á þátttakendur s.s. kostur, hafnargjöld, olia o.s.frv. Reikna má með u.þ.b. 45 tyrkneskum lírum á dag (4.500 ISK) fyrir þann þátt.
Flugsæti KEF-AYT-KEF 78.800- kr. með sköttum. Samtals 193.550- kr. (1.290- Evrur) fyrir 2 í káetu.
Eða 250.925- kr. fyrir einn í káetu (1.672- Evrur).

Námskeið þessi eru sett upp með þá í huga sem ætla sér að leigja eða kaupa skútu og sigla sjálfir. (Cruising). Námskráin er byggð á kröfum Siglingastofnunar fyrir skemmtibátaskírteini og stöðlum Royal Yachting Association fyrir Day Skipper. Að auki eru ýmis önnur atriði tekin fyrir sem við teljum að séu nauðsynleg, uppbyggjandi og fróðleg fyrir tilvonandi „cruising“ skipstjóra.

Kennslan fer fram um borð í 45 feta Jeanneau Sun Odyssey 45 og búa þátttakendur um borð þann tíma sem námskeiðið tekur. Hámarks fjöldi nemenda eru 6 í hvoru námskeiði.
Áætlað er að fyrra námskeiðið hefjist frá heimahöfn Seaways, Göcek og ljúki í Finike, sem er í um 100 km. fjarlægð frá Antalya. Seinna námskeiðið hefst í Finike og lýkur í Göcek.

Siglingasvæðið er mjög hentugt til þjálfunar fyrir „cruising“ skipstjóra, þar sem aðstæður eru þannig að nemendur fá þjálfun í að akkera við mismunandi aðstæður og leggja að í mismunandi höfnum. Veðurfar er hagstætt, mjög sjaldan landlegur vegna veðurs, en getur blásið þokkalega um miðjan dag (7-12 m/sek.), frábært til að ná góðum tökum á meðhöndlun seglabúnaðar við mismunandi skilyrði.

Að lokum er svo vert að minnast á að ibúarnir eru einstaklega gestrisnir og hjálpsamir og kunna vel til verka í matreiðslu.

Frábær leið til að sameina áhugamál og skemmtiferð

Þeir sem hafa áhuga hafið samband við Önund hjá Seaways:
Simi +354-8918747
E-mail onni@seaways-sailing.com

Posted: 07/02/2009

blue swish

6 th International Autumn Göcek Regatta 11. - 14. nov. 2008 - Niðurstöður

Overall

Yacht Name
Race I
Race II
Race III
Race IV
Total
Pos.
VAKATED 1 1 2 1 5 1
ANDREA 4 2 1 3 10 2
SOLLARE 2 3 4 2 11 3
GÖKOVA II 3 4 3 5 15 4
SALKA VALKA II 5 7 5 4 21 5
SELVINAZ 6 6 6 6 24 6
WILD CAT 7 5 9 10 31 7
VENLA 8 8 8 8 32 8
ANNIE J 11 9 7 9 36 9
LMQ 11 10 10 7 38 10
 

Fleiri úrslit hér

Posted: 02/12/2008

blue swish